Taekwondoæfingar 2010-2011

Þá er farið að hausta og æfingar að hefjast í Taekwondo.
Æfingar í íþróttahúsi Snælandsskóla í vetur verða sem hér segir:
 
Yngri hópur (yngri en 10 ára):
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 15:00-16:00
Eldri hópur (10 ára og eldri og/eða grænt belti og hærra):
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 16:00-17:00.
Æfingar í Snælandsskóla hefjast næstkomandi mánudag, 6. september.
Til stóð að hefja æfingar í Kórnum í næstu viku líka en vegna breytinga á niðurröðun æfingatíma þar er enn óvíst hvenær æfingar þar hefjast.
Æfingar í Digranesi munu fara eftir því hvernig niðurröðun í Kórnum verður.
Þeir sem hafa áhuga á að æfa Taekwondo eru velkomnir á æfingar í vikunni.  Skráningar fara fram á hk.is, skráningarflipi er hægra megin á síðunni. 
Þeir sem eru ekki ákveðnir en langar að prófa eru velkomnir á æfingu í næstu viku.
Við hlökkum til að fá sem flesta til okkar í haust.
Kv.
Þjálfarar og stjórn taekwondodeildar

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband