Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
Æfinga"helgi" föstudaginn 5. nóvember
4.11.2010 | 13:32
Á morgun, föstudag verður æfinga"helgi" í taekwondo.
Hún hefst með sameiginlegri æfingu allra, bæði iðkenda í Kór og Snælandsskóla, í íþróttahúsi Snælandsskóla. Hún hefst kl.16:00.
Að æfingu lokinni (kl. 17:00) er farið yfir í Fagralund. Þar verður borðað og horft á skemmtilega mynd.
Þegar allir eru orðnir saddir og sælir er farið aftur yfir í íþróttahús Snælandsskóla en þar verður gist um nóttina. Þeir sem eiga einhver skemmtileg spil sem margir geta spilað saman, eru endilega beðnir að koma með þau.
Á laugardagsmorgninum verður hollur og góður morgunverður á boðstólum.
Eftir morgunverð verður leikið og kl. 10:30 koma nokkrir iðkendur frá Aftureldingu í heimsókn og keppa í bardaga við nokkra HK-inga (Þorri hefur samband við þá sem keppa fyrir hönd HK).
Þeir sem ekki keppa í bardaga fylgjast með keppninni og hvetja sitt fólk (foreldrum er velkomið að koma líka og fylgjast með).
Iðkendur þurfa að taka með eftirfarandi fyrir gistinguna:
Sæng / svefnpoka og kodda
Vindsæng eða dýnu
taekwondogalla (eða íþróttaföt)
náttföt
tannbursta, tannkrem og þvottastykki
Dagskrá lýkur rétt fyrir hádegi 6. nóvember.
Frekari upplýsingar hjá Ástu, asta@bhs.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)